Nýr söngkennari hjá Tónlistarskólanum


Jón Þorsteinsson söngvari hóf tónlistarnám ungur að árum hjá Magnúsi Magnússyni í Tónskóla Ólafsfjarðar. Hann stundaði seinna nám hjá Marit Isene við Tónlistarháskólann í Osló í Noregi, við Det Jydske Musikkonservatorium í Árósum og hjá Arigo Pola í Modena á Ítalíu. Hann kom víða fram sem einsöngvari sem og kórsöngvari í útvarps- og óperukórum. Jón hefur starfað í Hollandi frá 1980 og söng hann meðal annars yfir 40 hlutverk á þeim tíma hjá Hollensku ríkisóperunni sem og víðs vegar við óratoríu- og ljóðaflutning. Einnig var hann meðlimur í Óperustúdíói Hollensku ríkisóperunnar frá 1982 til 1985. Jón naut leiðsagnar hollensku söngkonunnar Aafje Heynis frá 1986-1995 og byrjaði sjálfur að kenna upp úr 1982. Frá 1993 hefur hann einbeitt sér að söngkennslu, raddþjálfun og kennslufræði og frá 2008 hefur hann starfað sem prófessor í söng við Tónlistarháskólann í Utrecht í Hollandi. Á árunum 1998 til 2003 og frá 2008 til 2010 stundaði Jón nám við Lichtenberg Institut für angewandte Stimmphysiologie. Hann hefur haldið masterklassa frá 1985 á Íslandi, í Hollandi, Þýskalandi, Danmörku, Bandaríkjunum og Belgíu. Hann kenndi auk þess um nokkurra ára skeið við Jette Parker Young Artist Program við Royal Opera House, Covent Garden í Lundúnum.