Laugardaginn 5 janúar stóð karlakór Fjallabyggðar, undir stjórn Elíasar Þorvaldssonar ásamt Tónlistarskólanum á Tröllaskaga, fyrir nýarstónleikum í Siglufjarðarkirkju. Þar komu fram auk karlakórsins og hljómsveitar; kirkjukórinn, einsöngvarar, hljómsveit undir stjórn Guðmanns Sveinssonar kennara, nemendur 4 bekkjar og nemendur tónlistarskólans. Kynnir tónleikanna var Þorsteinn Sveinsson sem fór á kostum. Í upphafi flutti Pál Barna Szabo orgelverk eftir Bach.
Óhætt er að segja að tónleikarnir hafi verið hinir glæsilegustu og ákaflega vel undirbúnir. Dagskráin mjög fjölbreitt og skemmtileg. Hljóðmaður tónleikanna var að sjálfsögðu Gunnar Smári Helgason.
Tilkoma tónleikanna var sú að Karlakór Fjallabyggðar hefur æft í húsnæði tónlistarskólans á Siglufirði og vildu þeir halda þessa tónleika til styrktar skólanum í þakklætisskyni. Fjöldi var á tónleikunum og þakkar tónlistarskólinn kærlega fyrir sig, þátttakendum sem og gestum fyrir glæsilega tónleika.
Skíðabraut 12. Dalvík Aðalgötu 13. Ólafsfirði Aðalgötu 27. Siglufirði Sími á skrifstofu: Dalvík 4604990 Ólafsfirði 4649210 Siglufirði 4649130 Netfang: tat@tat.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: tat@tat.is eða í síma D: 4604990 og F: 4649210