Sunnudaginn 12 apríl var Uppskeruhátíð tónlistarskólanna á norðurlandi haldin í laugaborg í Eyjarfjarðarsveit. Tónleikarnir bera yfirskriftina „Nótan“ Viðburðurinn er haldin árlega eftir forval hvers tónlistarskóla fyrir sig og umsjón og staðsetning er mismunandi milli ára. Að þessu sinni voru 5 tónlistarskólar skráðir til leiks, þar á meðal Tónlistarskólinn á Tröllaskaga og áttum við fulltrúa í þremur atriðum. Heiðdís Erla Sigurðardóttir lék á píanó Sarabande eftir A. Corelli, Alda Máney Björgvinsdóttir og Jakob Örn Hvanndal sungu The phanton of the Opera eftir A. L. Webber og Kristófer Björn Sindrason söng lagið Dream a little dream of me eftir þá G. Kahn, W. Schwandt og F. Andre. Í því atriði lék einnig á trommur Páll Snorrason. Öll stóðu þau sig frábærlega, sér og sínum skóla til mikils sóma.
|
Skíðabraut 12. Dalvík Aðalgötu 13. Ólafsfirði Aðalgötu 27. Siglufirði Sími á skrifstofu: Dalvík 4604990 Ólafsfirði 4649210 Siglufirði 4649130 Netfang: tat@tat.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: tat@tat.is eða í síma D: 4604990 og F: 4649210